Í gær byrjaði Fura málmendurvinnsla ehf. að rífa Skreiðarhúsið á Siglufirði. Húsið sem var byggt 1936 var áður skreiðargeymsla, en síðustu áratugina hefur það verið í eigu Ramma og notað sem geymsluhús. Reiknað er með að það taki 5-6 daga að rífa húsið.
Byrjað var að rífa húsið fyrir kvöldmat í gær
Staðan kl. 8 í morgun
Ramminn færði Menntaskólanum á Tröllaskaga gjöf
23. ágúst 2010
Rammi hf. gaf Menntaskólanum á Tröllaskaga í Ólafsfirði eina milljón króna við setningu skólans sl. laugardag. Ólafur Marteinsson framkvæmdarstjóri afhenti Láru Stefánsdóttur skólameistara gjöfina við skólasetninguna um leið og hann óskaði skólanum velfarnaðar.
Menntaskólinn á Tröllaskaga Mynd: Magnús Sveinsson
Humarvinnsla byrjuð eftir sumarfrí
19. ágúst 2010
Löndun úr Jóni á Hofi í gær
Humar úr Jóni í ískrapa
Humarvinnsla er byrjuð aftur í verksmiðju okkar í Þorlákshöfn eftir lokun vegna sumarleyfa. Sem fyrr afla Jón á Hofi ÁR 42 og Fróði ÁR 38 hráefnis fyrir vinnsluna. Landað var úr Jóni í gær og var hann með rúm 90 kör, veidd í Háfadýpi og þar af 56 kör af heilum humri, ca. 7 tonn. Hann er kominn með tæp 200 tonn af heilum humri lönduðum á vertíðinni frá því í byrjun apríl en í vinnslu Ramma í Þorlákshöfn hefur verið unnið úr rúmum 350 tonnum af heilum humri á þessari vertíð.
Landað úr Sigurbjörgu
13. ágúst 2010
Sigurbjörg ÓF 1 kom til Siglufjarðar í morgun til hlutalöndunar eftir þorskveiðar í Barentshafi. Heildarafli var yfir 600 tonn og aflaverðmæti 160 milljónir króna. Að lokinni löndun heldur skipið áfram á veiðum í íslensku lögsögunni.
Landað úr Mánabergi
4. ágúst 2010
Í dag er verið að landa úr Mánabergi ÓF 42 í Ólafsfirði. Heildarveiði var 600 tonn úr sjó eftir 24 daga veiðiferð og var afli blandaður; þorskur, ýsa, ufsi og karfi. Söluverðmæti aflans er um 193 milljónir króna. Skipið fer aftur til veiða í lok vikunnar.
Flakasnyrting í Mánaberginu
Ýsuflökum pakkað
Jón á Hofi í slipp
3. ágúst 2010
Jón á Hofi ÁR 42 er búinn að vera í stuttum slipp í Reykjavík þar sem skipið var m.a. málað og einnig er verið að mála Fróða ÁR 38 í Þorlákshöfn. Í ágúst fara Jón og Fróði svo aftur á humarveiðar fyrir humarvinnslu Rammans í Þorlákshöfn sem opnar aftur eftir sumarfrí um miðjan mánuðinn.
Þetta er TJALDstæðið mitt !
30. júlí 2010
Þetta er TJALDstæðið mitt !! Argur tjaldur á miðri mynd.
Tjaldarnir sem gerðu sér hreiður á lóð Rammans á Siglufirði fyrr í sumar og við sögðum frá hér á síðunni hafa heimsótt okkur reglulega síðan þeir yfirgáfu svæðið með unga sína.
Annar þeirra leit við í morgun og var greinilega ráðviltur og ósáttur þegar búið var að leggja TJALDstæðið hans undir húsbíla Síldarævintýrisgesta.
Iðnaðarrækja til Siglufjarðar
26. júlí 2010
Flutningaskipið Icestar kom til Siglufjarðar undir hádegi í gær með hátt í 700 tonn af frosinni iðnaðarækju frá Noregi sem vinna á í rækjuvinnslu Rammans. Löndun hófst strax eftir að skipið kom og lauk henni í gærkvöldi.
Gulli Sínu flutti rækjuna frá borði
Icestar í Siglufjarðarhöfn
Góð rækjuveiði hjá Siglunesinu
25. júlí 1010
Í morgun var landað 19 tonnum af rækju úr Siglunesi SI 70 til vinnslu hjá rækjuverskmiðju Rammans á Siglufirði eftir 5 daga veiðiferð. Eftir löndun hélt skipið strax aftur til veiða enda er ágæt rækjuveiði úti fyrir Norðulandi.
Pétur og Bjarki taka kostinn um borð
Siglunesið í Siglufjarðarhöfn í dag
Heildarveiði úthafsrækju og heimsmarkaðsverð á olíu
22. júlí 2010
Heildarveiði úthafsrækju á Íslandsmiðum (þúsundir tonna) og heimsmarkaðsverð á olíu (USD/tonn) árin 1994-2008
Sigurbjörg með fullfermi
20. júlí 2010
Sigurbjörg í Barentshafinu
Sigurbjörg ÓF 1 er komin til Ólafsfjarðar eftir vel heppnaða veiðiferð í Barentshafið. Heildarafli var 646 tonn, mest þorskur og aflaverðmæti um 174 milljónir króna. Aflanum verður landað á morgun. Mánaberg ÓF 42 er á blönduðum veiðum á heimamiðum.
Múlabergið fékk í skrúfuna
19. júlí 2010
Bylgjan kemur með Múlabergið í togi til hafnar í Siglufirði
Bylgjan VE 75 kom með Múlaberg SI 22 í togi til Siglufjarðar nú á tólfta tímanum eftir að Múlabergið hafði fengið veiðafærin í skrúfuna við rækjuveiðar út af Norðurlandi. Gott veður var þegar þetta gerðist og engin hætta á ferðum. Stefnt er að því að skera úr skrúfunni í dag og vonast er til að skipið komist aftur á veiðar í kvöld.
Ripp, Rapp og Rupp á Rammalóð
13. júlí 2010
Tjaldapar gerði sér hreiður á lóð Rammans á Siglufirði í júní og nýlega skriðu þrír ungar úr eggjunum. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar foreldrarnir undirbjuggu Ripp, Rapp og Rupp undir ferðina út í stóra heim. Síðast þegar til fjölskyldunnar sást farnaðist henni vel á hægri en öruggri leið sinni í fjöruátt.
Sigurbjörg ÓF í Barentshafi
7. júlí 2010
Sigurbjörgin er nú komin til veiða í Barentshafinu og þessi mynd af henni þaðan er á góðri ljósmyndasíðu Brynjars Arnarsonar sjómanns á Björgvini EA. Við erum sammála Brynjari að Sibban beri nýja litinn bara vel.
Mánaberg ÓF 42 er nú komið til hafnar í Ólafsfirði eftir góðan túr. Skipið veiddi um 693 tonn í veiðiferðinni og er söluverðmæti aflans um 200 milljónir króna. Í fyrri hluta túrsins var skipið á karfaveiðum á Reykjaneshrygg og var karfanum millilandað í Reykjavík 23. júní, eftir það var svo farið á blandaðar veiðar innan lögsögunnar. Þess má geta að þetta er með betri veiðiferðum Mánabergs frá upphafi.
Ágætis gangur í rækjuvinnslu Rammans
2. júlí 2010
Rækjuveiðar úti fyrir Norðurlandi hafa gengið vel það sem af er ári og hefur rækjuvinnsla Ramma á Siglufirði tekið hátt í 1700 tonn af rækju til vinnslu frá áramótum. Múlaberg SI 22, Siglunes SI 70 og Sigurborg SH 12 afla nú hráefnis fyrir rækjuverksmiðjuna.
Um 15 manns starfa nú við rækjuvinnsluna og hefur framleiðslan gengið með ágætum og eins og við sögðum frá nýlega fékk verksmiðjan nýlega svokallaða BRC (British Retail Consortium) gæðavottun þannig að hún er nú samþykkt sem framleiðandi fyrir flesta af kröfuhörðustu kaupendum á Bretlandsmarkaði.
Myndir af rækjuveiðum teknar um borð í Siglunesi SI 70
Sigurbjörg til veiða
28. júní 2010
Sigurbjörg ÓF 1 sem verið hefur í slipp á Akureyri síðustu vikurnar var sjósett sl. miðvikudag og voru meðfylgjandi myndir teknar þá. Hún hélt svo í Barentshaf til þorskveiða á laugardagskvöldið.
Mánaberg ÓF 42 er á blönduðum veiðum á heimamiðum, Múlaberg SI 22 á rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi, Jón á Hofi ÁR 42 er á humarveiðum á Selvegsbanka og Fróði ÁR 38 landaði humri í Þorlákshöfn í morgun.
Millilandað úr Mánabergi
23. júní 2010
Mánaberg ÓF-42
Mánaberg ÓF-42 kemur til hafnar í Reykjavík í dag þar sem millilandað verður úr skipinu sem búið er að vera á karfaveiðum á Reykjaneshrygg sl. tvær vikurnar.
Heildarafli er 443 tonn af úthafskarfa og söluverðmæti aflans er ca. 116 milljónir króna EXW. Að lokinni löndun fer Mánabergið á blandaðar veiðar innan landhelgi það sem eftir lifir veiðiferðar.
Er furða þó mönnum blöskri ?
18. júní 2010
Dr. Jón Steinsson er lektor við Columbia háskóla. Jón skrifaði “Umsögn um greinargerð Háskólans á Akureyri á áhrifum fyrningarleiðar á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja”
Það væri verðugt verkefni að þýða “umsögn” Jóns og senda Columbia háskóla.Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir skólann að sjá að hans virðulega nafn er notað í pólitískum áróðri undir yfirskini fræða. Hér fer á eftir stuttur kafli úr ”umsögn” Jóns.
"Hagsmunagæslumenn útgerðarinnar hafa lengi varað við hruni ef fyrningarleiðin er farin og talað um hana sem „gjaldþrotaleið“. Hér skortir á skilning þessara aðila á mismuninum á gjaldþroti annars vegar og greiðslustöðvun og nauðasamningum hins vegar. Staða útgerðarinnar er ekki ósvipuð þeirri stöðu sem flugfélög í Bandaríkjunum koma sér í af og til.
Þau verða fyrir áfalli (t.d. vegna eldgoss á Íslandi eða hryðjuverka í New York) og geta ekki lengur staðið undir þeim skuldum sem þau hafa á bókum sínum. Þá leita þau eftir greiðslustöðvun og gera nauðasamninga við kröfuhafa sína. Þetta ferli hefur engin áhrif á rekstur fyrirtækjanna. Þau halda áfram að fljúga eins og ekkert hafi í skorist. Það er vegna þess að framtíðarrekstrargrundvöllur er fyrir hendi þrátt fyrir skellinn sem átt hefur sér stað”.
Er furða þó mönnum blöskri ?
Humarvertíð gengur vel
16. júní 2010
Humarveiðar og vinnsla í Þorlákshöfn hafa gengið vel það sem af er vertíðinni sem hófst í byrjun apríl og hefur veiðin verið góð allt þar til nú eftir sjómannadag að hún minnkaði. Það er hefðbundið að humarveiðin dragist saman tímabundið í júní.
Sala humarafurða hefur einnig gengið vel og sér í lagi sala á heilum humri sem er megin afurð Ramma í Þorlákshöfn. Langmestur hluti humarafurða fyrirtækisins er heill humar og helsti markaður fyrir hann er Spánn. Breytingar á útbúnaði skipanna fyrir þessa vertíð hefur m.a. leitt til þess að humarinn er betri til vinnslu en undanfarin ár og minna hefur þurft að að slíta af heilum humri vegna útlitsgalla.
Humarvinnsla um borð í Jóni á Hofi
Jón á Hofi á veiðum
Gjörningur hjá Ramma
10. júní 2010
Fjöllistakonan Anna Richards frá Akureyri heimsótti Siglufjörð í gær og framdi þá m.a. gjörninginn "Dansert 2010" fyrir starfsmenn Rammans og Primex á skrifstofu fyrirtækjanna. Óhætt er að segja að sýning Önnu og boðsskapur hafi fallið í góðan jarðveg hjá starfsfólkinu og kunnum við henni bestu þakkir fyrir heimsóknina. Það er hressandi að brjóta upp hversdagsleikann með svona viðburðum.
Sjómannadagurinn í Fjallabyggð og Þorlákshöfn
9. júní 2010
Eins og við sögðum frá var mikið um að vera í Fjallabyggð og Ölfusi um sjómannadagshelgina. Starfsfólk okkar á Siglufirði og í Þorlákshöfn grillaði á föstudag, í Þorlákshöfn voru Hafnardagar og á Ólafsfirði var sjómannadeginum fagnað.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá þessum viðburðum
Þeir sem til þekkja vita að Ólafsfirðingar hafa mikinn áhuga á skipum sínum og útgerð enda er fólki óvíða betur ljóst mikilvægi sjávarútvegs fyrir byggðarlag sitt. Gott dæmi um þetta er að nú hafa 176 manns mótmælt litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1 á fésbókinni, en eins og við sögðum frá er nú verið að mála skipið með sama rauða lit og er á öðrum skipum Rammans. Áður var Sigurbjörgin blá og ljóst er að sitt sýnist hverjum um þessa breytingu. Við vonum bara að það fiskist á rauða litinn ekki síður en á þann bláa.
Múlabergið SI 22 í Siglufjarðarhöfn á sjómannadeginum 2009
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra sem og öllum íbúum í Fjallabyggð og Ölfusi til hamingju með sjómannadagshelgina.
Það er mikið um dýrðir í sveitafélögunum þessa dagana. Starfsfólk okkar á Siglufirði og í Þorlákshöfn grillaði í gær, í Ólafsfirði eru hátíðarhöld alla helgina og í Þorlákshöfn fagna menn Hafnardögum.
Við birtum myndir frá þessum viðburðum hér á síðunni eftir helgi.
165 milljón kr. karfatúr Mánabergs
4. júní 2010
Mánaberg ÓF 42 er nú að koma til hafnar eftir úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg. Veiðiferðin sem hófst 13. maí gekk vel og heildarafli var ca. 650 tonn og aflaverðmæti ca. 165 milljónir króna. Skipið kom inn til millilöndunar 27. maí.
Að sögn Sigþórs Kjartanssonar skipstjóra var veiðin fyrri hluta túrsins rétt utan við 200 mílna landhelgina en seinni hlutann var veiðin nánast á landhelgislínunni og rétt innan við hana. Karfinn sem skipið fékk var góður og blíðuveður var fyrri part veiðiferðar en kaldaskítur undir lokin. Eftir sjómannadag er stefnan svo aftur sett á Reykjaneshrygginn.
Það var ekki alltaf bræla !
Karfapokinn flýtur fyrir aftan skip
Það er vandaverk að taka Gloríuna
35-40 tonn
Sigurbjörg ÓF 1 breytir um lit
2. júní 2010
Sigurbjörg ÓF 1 í nýjum lit Sigurbjörg ÓF – 1 er nú í slipp á Akureyri. Skipið verður málað frá masturstoppi og niður úr. Eins og sjá má á myndinni þá er verið að mála skipið í nýjum litum. Verða þá öll skip Ramma hf. máluð sömu litum.
Áætlaður verktími í slippnum er 3 vikur. Auk venjulegra slippverka er töluverð viðgerð á skrúfu skipsins.
Rækjuverksmiðja Ramma fær BRC gæðavottun
1. júní 2010
Múlaberg SI 22 veiðir rækju fyrir verksmiðjuna á Siglufirði
Rækjuvinnsla Ramma á Siglufirði hefur tekið um 1300 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur framleiðslan gengið vel og rækjan selst jafnóðum. Verksmiðjan fékk nýlega svokallaða BRC (British Retail Consortium) gæðavottun þannig að hún er nú samþykkt sem framleiðandi fyrir flesta af kröfuhörðustu kaupendum á Bretlandsmarkaði.
Humarveiðar frá Þorlákshöfn hafa gengið skv. áætlun það sem af er vertíðar og hafa Jón á Hofi ÁR 42 og Fróði ÁR 38 nú veitt u.þ.b. helming af kvóta fyrirtækisins. Humarinn hefur verið stór og góður og vinnslan í Þorlákshöfn og sala á humrinum hefur gengið mjög vel.
Mánaberg ÓF 42 er nú á karfaveiðum á Reykjaneshrygg og hefur afli verið góður það sem af er veiðiferðar. Skipið millilandaði í lok síðustu viku og er svo væntanlegt til hafnar fyrir sjómannadag. Sigurbjörg ÓF 1 er í slipp á Akureyri en fer að honum loknum til þorskveiða í Barentshafi.
Góð veiði hjá Rammaskipum
14. maí 2010
Aflabrögð hjá skipum Rammans hafa verið góð að undanförnu. Mánabergið landaði í Ólafsfirði í síðustu viku 223 tonnum af afurðum, afli úr sjó var 427 tonn. Mest var veitt af þorski og ufsa og var aflaverðmæti veiðiferðarinnar um 140 milljónir króna. Skipið er nú á leið til karfaveiða á Reykjaneshrygg. Sigurbjörgin er væntanleg til löndunar um næstu helgi og hefur veiði verið góð hjá henni hingað til. Eftir löndun fer Sigurbjörg í ca. þriggja vikna slipp til Akureyrar.
Rækjuverksmiðjan á Siglufirði hefur tekið rúmlega 1.100 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur langmestum hluta þess afla verið landað á Siglfufirði, en lítilsháttar af rækjunni hefur verið landað í Grundarfirði og ekið til Siglufjarðar. Rækjuvinnslan hefur gengið vel það sem af er ári og nú afla Sigurborg, Siglunes og Múlaberg hráefnis fyrir hana.
Fróði og Jón á Hofi byrjuðu humarveiðar frá Þorlákshöfn fyrir rúmum mánuði og hafa þær gengið vel fram að þessu. Skipin eru nú á veiðum við Surtsey og fer humarinn stækkandi eftir því sem veiðar færast vestur á bóginn. Sala á humri sem og reyndar öllum afurðum fyrirtækisins hefur gengið vel það sem af er ári.
Humarvertíð að hefjast
9. apríl 2010
Sigurbjörgin er á nú blönduðum veiðum á heimamiðum en Mánabergið er í slipp á Akureyri og stefnt er á að skipið fari á veiðar um 20. apríl. Sigurbjörg landaði síðast á Ólafsfirði í byrjun apríl 175 tonnum af afurðum og aflaverðmæti var um 109 milljónir króna.
Humarvertíð er hafin og munu Jón á Hofi og Fróði veiða fyrir humarsvinnsluna í Þorlákshöfn. Síðustu mánuði hafa þeir aflað hráefnis sem unnið hefur verið þar ásamt karfanum úr Múlabergi.
Yfir 700 tonnum af rækju hefur nú verið landað hjá rækjuverksmiðju Rammans á Siglfirði frá áramótum og hefur vinnslan þar gengið vel. Siglunes, Sigurborg og Bylgjan hafa verið á rækjuveiðum fyrir verksmiðjuna að undanförnu og nú um helgina bætist Múlaberg í þeirra hóp, en skipið hefur verið á karfaveiðum frá Þorlákshöfn.
Miklum afla landað í Fjallabyggð
16. feb. 2010
Miklum afla hefur verið landað á vegum Ramma í Fjallabyggð frá áramótum. Sigurbjörg og Mánaberg lönduðu nýlega 455 tonnum af fiski að verðmæti 344 milljónir króna og rækjuskipin Sigurborg og Siglunes hafa landað 350 tonnum af rækju og 25 tonnum af fiski. Rækjan hefur öll farið til vinnslu í rækjuverksmiðjunni á Siglufirði.
Múlaberg er nýkomið úr slipp á Akureyri og er að hefja veiðar frá Þorlákshöfn þar sem skipið verður fram á vor og Jón á Hofi og Fróði afla og hráefnis fyrir vinnsluna þar
Rækjuvinnsla að hefjast á Siglufirði
12. jan. 2010
Í dag landa Siglunes SI 70 og Sigurborg SH 12 rækju á Siglufirði og hefst framleiðsla í rækjuverksmiðjunni þar því í vikunni. Múlaberg SI 22 er í stórum slipp á Akureyri nú í janúar.
Sigurbjörg ÓF 1 er á þorskveiðum í Barentshafinu og Mánabergið ÓF 42 veiðir í íslensku lögsögunni. Þorlákshafnarbátarnir Jón á Hofi ÁR 42 og Fróði ÁR 48 afla hins vegar hráefnis fyrir vinnsluna þar.