|
|
|
|
|
Ábyrgar fiskveiðar
|
|
|
|
|
|
|
|
|

Fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum byggist á lögum um stjórn fiskveiða nr. 38/1990. Þau grundvallast á aflamarkskerfi í þeim tegundum sem veiðar eru takmarkaðar á.
Stjórnvöld, í samráði við hagsmunaaðila, vinna ötullega að því að tryggja sjálfbæra nýtingu á auðlindinni. Ákvarðanir eru ávallt teknar á vísindalegum forsendum og er þar byggt á starfi Hafrannsóknastofnunar. Fiskverndun á Íslandsmiðum er byggð á þremur grundvallaraðferðum: Aflareglu sem er þróuð fyrir hvern nytjastofn. Í því felst að ákvarðað er hversu stórt hlutfall er veitt af veiðistofni ár hvert. Reglum varðandi útbúnað veiðarfæra. Áhersla er lögð á kjörhæfni veiðarfæra sem þýðir að reynt er að veiða einungis þær tegundir og þá stærð af fiski sem leitað er eftir. Með verndun og lokun ákveðinna svæða. Í þessu felst að ákveðin veiðarfæri eru bönnuð á tilteknum svæðum eða þá að svæði eru algjörlega lokuð fyrir veiðum. Þetta er gert til að vernda t.d. hrygningarfisk eða ungviði
Fjá frekar: www.fisheries.is |
|
|
|
|
Aðalskrifstofa: sími 460 5500 | Skrifstofa Ólafsfirði: sími 460 6600 | Skrifstofa Þorlákshöfn: sími 460 5599
 |
|